top of page

Saga stofunnar

Rakarastofa Ragnars og Harðar var stofnuð 14. febrúar 1957 af Herði Þórarinssyni, rakarameistara, og Trausta Thorberg. Trausti starfaði á stofunni fyrstu þrjú árin, en Hörður vann þar allt til ársins 2007 og hafði þá staðið við stólinn í heil 60 ár. Frá upphafi hefur rakarastofan verið staðsett í hjarta miðbæjarins, að Vesturgötu 48 í Reykjavík.

​

Hörður rakari árið 1957
Rakarar við störf hjá Rakarastofu Ragnar og Harðar

Árið 1974 gekk önnur kynslóð til liðs við stofuna þegar Ragnar, sonur Harðar, fylgdi í fótspor föður síns og hefur starfað þar allar götur síðan.

​

Þriðja kynslóð  stofunnar eru afabörn Harðar og bræðrabörn Ragga, Gunnlaugur (Gulli) Hauksson, og Hrafnhildur Þórarinsdóttir.


Rakarastofa Ragnars og Harðar sérhæfir sig í hárklippingum, skeggsnyrtingu og rakstri.

Rakarar við störf hjá Rakarastofu Ragnar og Harðar

Kominn tími á klippingu?

bottom of page